Norðmenn vilja setja tugi milljarða í endurreisnina

Norski fáninn
Norski fáninn Reuters

Hópur norskra fjárfesta undir forystu Endre Røsjø vill setja 20 milljarða íslenskra króna í langtímafjárfestingu í íslensku atvinnulífi. Hefur Røsjø fundað með fulltrúum lífeyrissjóðanna með það fyrir augum að stofna sérstakan fjárfestingarsjóð sem yrði samvinnuverkefni lífeyrissjóða og Norðmannanna. Hugmyndin er að lífeyrissjóðirnir setji 20 milljarða á móti framlagi norsku fjárfestanna.

„Svein Harald Øygard, þáverandi seðlabankastjóri, bauð mér hingað í apríl. Ætlun hans var að leiða saman fjárfesta til að koma að fjárfestingu í íslenskum fyrirtækjum og stuðla að endurreisn íslensks efnahagslífs,“ segir Røsjøi.

Hrafn Magnússon, framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða, sat í gær fund með Røsjø, fulltrúum tveggja stórra lífeyrissjóða, ásamt Øygard og Ingjald Ørbeck Sørheim, sem er norskur lögfræðingur og frammámaður í norska Verkamannaflokknum. „Við teljum að það sé mjög áhugavert að ná samvinnu við Norðmennina um aðkomu þeirra að endurreisnarstarfinu enda nauðsynlegt að fá erlent fjármagn inn í landið, ekki síst frá vinum okkar á Norðurlöndunum,“ segir Hrafn.

Røsjø er sjálfur að íhuga alvarlega að leggja MP banka til 50-60 milljónir nkr. í formi nýs hlutafjár, sem jafngildir 1-1,2 milljörðum íslenskra króna.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert