49 mál í rannsókn

Ragna Árnadóttir dómsmála- og mannréttindaráðherra og Ólafur Þór Hauksson, sérstakur …
Ragna Árnadóttir dómsmála- og mannréttindaráðherra og Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari. Af vef dómsmálaráðuneytisins

Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, rannsakar nú ásamt starfsfólki sínu 49 mál og reiknar Ólafur með að þeim eigi enn eftir að fjölga til muna. Alls starfa nú 17 manns hjá embættinu, sérfræðingar úr ýmsum greinum. Auk þeirra eru um þessar mundir þrír sérfræðingar frá Noregi að störfum við rannsóknina hér á landi og annað teymi í Frakklandi.

Ragna Árnadóttir dómsmála- og mannréttindaráðherra heimsótti embætti sérstaks saksóknara í gær. Kemur fram á vef ráðuneytisins að embættið hafi tekið miklum breytingum á undanförnum vikum, starfsfólki hefur verið fjölgað, þrír nýir saksóknarar skipaðir og starfsemin verið flutt í ný og rúmbetri húsakynni.

Gert er ráð fyrir því að starfsmönnum eigi eftir að fjölga enn frekar og muni hátt í 30 manns starfa að rannsókninni á næstunni.

Embætti sérstaks saksóknara hefur tekið upp formlegt samstarf við Serious Fraud Office (SFO), stofnun sem starfar við hlið efnahagsbrotadeildar bresku lögreglunnar er rannsakar meiri háttar efnahagsbrot. Fulltrúar frá embættinu hafa einnig fundað með lögreglunni í Lúxemborg og saksóknara efnahagsbrota þar um hugsanlegt samstarf. Þá er embættið í samstarfi við norska efnahagsbrotaembættið auk þess að eiga samskipti við lögreglu- og saksóknarayfirvöld í fleiri nágrannaríkjunum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert