Betur sett utan ESB

Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra.
Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra.

Jón Bjarnason, sjávarútvegsráðherra, sagði í erindi, sem hann flutti á ráðstefnu í Biarritz í Frakklandi í vikunni, að hann væri sannfærður um að hagsmunum Íslendinga væri betur borgið utan Evrópusambandsins en innan þess. 

„Alþingi Íslendinga ákvað í sumar að sækja um aðild að Evrópusambandinu. Ferlið er þegar hafið þótt enginn viti hve langan tíma þurfi fyrir aðildarviðræðurnar. Pólitíski bakgrunnurinn er nokkuð einkennilegur. Stjórnarflokkarnir tveir hafa andstæðar skoðanir. Annar vill aðild en hinn, flokkurinn minn, er nokkuð harður í andstöðu sinni en hefur samt fallist á að þjóðin fái að eiga síðasta orðið í atkvæðagreiðslu," sagði Jón á ráðstefnunni, sem fjallaði um strandveiðar.

„Nýlegar skoðanakannanir sýna, að mikill meirihluti Íslendinga er andvígur aðild. Í ljósi þess, að landbúnaðurinn, bændur og matvælaframleiðendur, eru andvíg aðild, og það sama gildir um allan sjávarútveginn sem og Vinstri græna, flokkinn minn, þá ætti það ekki að koma neinum á óvart að ég styð sjálfu ekki ESB-aðild.

Ísland er lítil eyja í miðju Atlantshafi með aðeins 300 þúsund íbúa. Grundvöllur afkomu okkar byggist á auðlindum okkar, við verðum að hafa yfirráð yfir verðmætustu eignum okkar því efnahagur okkar, menning og framtíð byggjast á því. Við getum átt víðtæka alþjóðlega samvinnu án þess að tengjast skipulagi Evrópusambandsins. Í ljósi þessa er það mín bjargfasta trú, að framtíð lands okkar sé mun betur borgið utan Evrópusambandsins en innan þess," sagði Jón.

Ræða Jóns Bjarnasonar

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert