Í fangelsi fyrir að stela nautalundum

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt konu í þriggja mánaða fangelsi fyrir að stela 2 pökkum af nautalundum úr verslun Hagkaupa í Kringlunni nú í sumar. Einnig stal konan kynlífsleikfangi úr versluninni Adam og Evu, sem metið var á tæpar 5000 krónur.

Konan játaði brotin. Hún hefur áður verið dæmd fyrir umferðarlagabrot, fíkniefnabrot og þjófnað og rauf með brotunum nú skilorð eldra dóms, sem var því tekinn upp. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert