Miðnætursundið gekk vel

Edda Sigríður Sigfinnsdóttir og Freyja Mist Ólafsdóttir voru í laugunum …
Edda Sigríður Sigfinnsdóttir og Freyja Mist Ólafsdóttir voru í laugunum í gærkvöldi. mbl.is/Eggert

Miðnætursund í Laugardalslaug gekk mjög vel að sögn starfsmanna laugarinnar. Margt fólk var í lauginni fram á fjórða tímann í morgun en þá tók að hægjast um.

Þegar Morgunblaðið hafði samband klukkan sex sat ennþá fólk í pottunum frá því í gærkvöld.

Starfsmenn laugarinnar binda vonir sínar við að næturopnunin gangi jafn vel næstu daga en telja má líklegt að einhver partýljón mæti undir áhrifum til sunds á föstudags- og laugardagskvöldi að sögn starfsmanna laugarinnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert