Kynnir rannsóknarskýrsluna fyrir þingforsetum

Páll Hreinsson hæstaréttardómari og formaður rannsóknarnefndar Alþingis.
Páll Hreinsson hæstaréttardómari og formaður rannsóknarnefndar Alþingis. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Fundur forseta þjóðþinga Norðurlanda og Eystrasaltsríkja er haldinn í Reykjavík í dag.

Á fundinum ræða forsetar sameiginleg verkefni þjóðþinganna og notkun upplýsingatækni við þingstörf. Gerð verður grein fyrir því sem er efst á baugi í stjórnmálum á Norðurlöndunum og Eystrasaltsríkjunum. Einnig ræða forsetarnir þátttöku þjóðþinga í alþjóðlegu þingmannasamstarfi. Páll Hreinsson hæstaréttardómari gerir grein fyrir störfum rannsóknarnefndar Alþingis og hvernig staðið var að rannsókn á  aðdraganda og orsökum falls íslensku bankanna.
 
 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert