Kirkjuráð biðst fyrirgefningar

Skrifstofur þjóðkirkjunnar við Laugaveg.
Skrifstofur þjóðkirkjunnar við Laugaveg. mbl.is/Eggert

Kirkjuráð segist  trúa frásögnum þeirra Sigrúnar Pálínu Ingvarsdóttur og Guðrúnar Ebbu Ólafsdóttur sem komu á fund ráðsins og lýstu sögu sinni sem þolendur kynferðisbrota Ólafs Skúlasonar, biskups. Biður kirkjuráð fyrir hönd þjóðkirkjunnar, konurnar og aðra þá, sem brotið hafi verið á af hálfu starfsmanna og þjóna kirkjunnar, fyrirgefningar.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu, sem kirkjuráð samþykkti á fundi sínum í dag.

Yfirlýsingin er eftirfarandi:

Kirkjuráð hefur átt fundi með Sigrúnu Pálínu Ingvarsdóttur og Guðrúnu Ebbu Ólafsdóttur þar sem þær lýstu sögu sinni sem þolendur kynferðisbrota. Kirkjuráð trúir frásögnum þeirra og tekur undir orð biskups Íslands í fjölmiðlum í dag þess efnis.

Fyrir hönd þjóðkirkjunnar biður kirkjuráð þær og aðra þá sem brotið hefur verið á af hálfu starfsmanna og þjóna kirkjunnar fyrirgefningar. Kirkjuráð harmar þá þjáningu og sársauka sem þau hafa liðið. 

Kirkjuráð ítrekar að kynferðisbrot eru ekki liðin innan kirkjunnar og lýsir samstöðu við þá einstaklinga og félagasamtök sem styðja þau sem líða og vinna að forvörnum og vitundarvakningu meðal þjóðarinnar um þessi alvarlegu mál.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert