Vilja loka Landeyjahöfn tímabundið

Herjólfur í Landeyjahöfn.
Herjólfur í Landeyjahöfn. mbl.is/RAX

Skipstjórnendur Herjólfs hafa, í samráði við Eimskip, lagt það til að Landeyjahöfn verði lokað þar til að aðstæður við höfnina lagist. Þetta kemur fram á vef Eyjafrétta en fundur um tillöguna stendur nú yfir. 

Dýpi við hafnarmynnið minnkaði um heila tvo metra á aðeins einum sólarhring í vikubyrjun en dýpkunarskipið Perlan byrjaði að dæla í morgun. Á háfjöru er aðeins tæpur metri frá skipsbotni og niður í sjávarbotn og segja Eyjafréttir, að  skipstjórnendur Herjólfs telji varhugavert að sigla inn í höfnina við þær aðstæður.

Á mánudag voru tvær ferðir felldar niður, önnur vegna þess að þá var háfjara.

Eyjafréttir.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert