Jarðskjálftar við Kistufell

Skjálftasvæðið við Kistufell. Kortið er tekið af vef Veðurstofunnar.
Skjálftasvæðið við Kistufell. Kortið er tekið af vef Veðurstofunnar.

Tveir jarðskjálftar, annar 3,3 stig og hinn 3,1 stig, urðu skammt frá Kistufelli við norðanverðan Vatnajökul í nótt og morgun.

Annar skjálftinn varð laust eftir klukkan 1 í nótt og hinn rétt fyrir klukkan 8.

Nokkur skjálftavirkni hefur verið á þessum slóðum að undanförnu en þetta er þekkt jarðskjálftasvæði. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert