Segja sig úr þingflokki VG

Lilja Mósesdóttir og Atli Gíslason.
Lilja Mósesdóttir og Atli Gíslason. mbl.is/Golli

Atli Gíslason og Lilja Mósesdóttir hafa sagt sig úr þingflokki Vinstri grænna. Þau hafa boðað við fundar í Alþingishúsinu kl. 11:30 í dag þar þau munu skýra mál sitt, að því er segir í tilkynningu frá þingmönnunum.

Þingflokkur VG situr núna á fundi, sem hófst um kl. 10. Um er að ræða fund sem boðaður var fyrir helgi. Atli og Lilja sitja ekki fundinn, en Ásmundur Einar Daðason, sem oftar en einu sinni hefur greitt atkvæði með Atla og Lilju í umdeildum málum, er á fundinum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert