Frost alla daga mánaðarins

Sumar í Nauthólsvík.
Sumar í Nauthólsvík. mbl.is/Eggert

Frost mældist einhvers staðar á landinu alla daga júnímánaðar, og í byggð voru frostnætur fimmtán talsins. Hiti í júní komst ekki í 20 stig nema einn dag, 19. júní, og þá aðeins á tveimur stöðum. Þetta kemur fram á vefsvæði Trausta Jónssonar veðurfræðings.

Tekið er fram í færslu Trausta að einn dagur er eftir af mánuðinum, en þó er margt athyglisvert sem litið hefur dagsins ljós. „Að minnsta kosti eitt merkilegt met var sett í mánuðinum. Meðalhiti mánaðarins á Gagnheiði er í kringum -0,8 stig. Erfitt er að keppa við þessa stöð í lágum hita á þessum tíma árs, enda hirti hún lægsta meðalhita júnímánaðar nærri því strax og hún var stofnuð (1993). En samt hefur gamla metið (-0,15°C) staðið frá 1998 og hitinn í núlíðandi júnímánuði því marktækt lægri.“

Trausti bendir einnig á, að dægurlágmarksmet fyrir landið var sett á Gagnheiði þegar lágmarkshiti 22. júní mældist -4,9 stig. „Þetta er 1,5 stigi neðar heldur en fyrra met sem sett var í Sandbúðum á Sprengisandi þennan dag 1978.“

Þá nefnir Trausti að mikill fjöldi dægurmeta hafi verið sleginn á einstökum veðurstöðvum. Mesta athygli veki að Stórhöfði náði nýju hámarksdægurmeti 28. júní þegar hiti þar mældist 15,5 stig, 0,7 stigum hærra en gamla metið frá 1951.

Vefsvæði Trausta Jónssonar

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert