Eimskip frumhannar nýja ferju

Herjólfur. Landeyjahöfn.
Herjólfur. Landeyjahöfn. mbl.is/GSH

Eftir ítarlega leit um allan heim að ferjum sem gætu hentað betur en Herjólfur til siglinga í Landeyjahöfn fundust aðeins tvær sem gætu komið til greina miðað við aðstæður. Þessar ferjur eru ekki á lausu, en viðræður við eigendur þeirra halda áfram. Eimskip hefur hinsvegar látið frumhanna nýja ferju sem aðlöguð hefur verið að aðstæðum í Landeyjahöfn.

Fram kemur í yfirlýsingu frá Eimskip að félagið hafi mikinn áhuga á því að taka þátt í því verkefni að tryggja og bæta samgöngur á milli lands og Eyja. Reynslan af siglingum með Herjólfi í Landeyjahöfn hafi sýnt að skipið  sé of djúprist. Það tekur á sig of mikinn vind og á í  erfiðleikum með strauminn og ölduna og hefur því ekki nægilega góða stjórnhæfni við ákveðnar aðstæður. Auk þess taka nýjar reglur gildi árið 2015 sem Herjólfur uppfyllir ekki varðandi ferjusiglingar á hafsvæði B.

„Því er tímabært að fara nú þegar að huga að framtíð siglinga milli Eyja og Landeyjahafnar til lengri tíma. Eimskip hefur látið frumhanna nýja ferju sem aðlöguð hefur verið að aðstæðum í Landeyjahöfn varðandi djúpristu og stjórnhæfni,“ segir í yfirlýsingunni frá Eimskip.

Ferjuhönnunin tekur mið af farþega- og bílafjölda og einnig mið af því að afgreiðsla skips í höfnum gangi hratt og vel fyrir sig. Auk þess er lögð áhersla á að ferjan sé hagkvæm í rekstri og umhverfisvæn.  Ferjan getur flutt allt að 78 fólksbíla og 400 farþega í hverri ferð  yfir veturinn, en allt að 475 farþega yfir sumarið.  Áætlaður kostnaður við smíði ferjunnar er tæplega 4 milljarðar króna og gert ráð fyrir því að hægt sé að fá ferjuna afhenta eftir 18-24 mánuði.

„Eimskip er tilbúið að skoða nánar með Vegagerðinni að koma að fjármögnun og byggingu nýrrar ferju og taka þannig þátt í að leysa samgöngumál milli lands og Eyja á farsælan hátt til langs tíma. “

Hugmynd að nýrri ferju milli lands og eyja.
Hugmynd að nýrri ferju milli lands og eyja. Eimskip
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert