Fluttu nýjan skála á Fimmvörðuháls

Nýi skálinn er hinn glæsilegasti.
Nýi skálinn er hinn glæsilegasti. Ljósmynd/Stefán Helgason

„Þessir flutningar voru langt og strangt verkefni,“ segir Stefán Helgason húsasmiður í Vorsabæ í Flóa. Nýr skáli Ferðafélags Íslands á Fimmvörðuhálsi var um helgina fluttur frá Skógum undir Eyjafjöllum upp undir hábungu hálsins. Þar stóð fyrir Baldvinsskáli, sem FÍ eignaðist fyrir nokkrum árum. Sú bygging verður tekin ofan, enda orðin feyskin.

Nýi skálinn er líkt og hinn fyrri A-laga bygging og er 63 fermetrar að flatarmáli. Með þessu hyggst  Ferðafélag Íslands koma enn betur til móts við þann mikla fjölda fólks sem gengur yfir Fimmvörðuháls, en fáar leiðir njóta viðlíka vinsælda meðal útivistarfólks. Þúsundir fara um þessar slóðir á hverju ári og þar eru ummerki eldsumbrotanna vorið 2010 mikið aðdráttarafl.

Skálinn var fluttur upp á hálsinn með vögnum og vinnuvélum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert