Fyrirmynd og hvatning fyrir þjóðina

Össur Skarphéðinsson og Jóhanna Sigurðardóttir
Össur Skarphéðinsson og Jóhanna Sigurðardóttir mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hefur sent Vilborgu Örnu Gissurardóttur suðurpólsfara kveðju fyrir hönd ríkisstjórnar Íslands.

„Til Vilborgar Örnu Gissurardóttur, suðurpólsfara

Kæra Vilborg.
Ég vil fyrir hönd ríkisstjórnarinnar óskar þér innilega til hamingju með að hafa náð því markmiði sem þú settir þér. Þú hefur sýnt þrautseigju, kjark og æðruleysi við erfiðar aðstæður.

Íslenska þjóðin hefur fylgst grannt með för þinni, afrek þitt er fyrirmynd og hvatning fyrir okkur öll og við samfögnum þér nú þegar þessum stóra áfanga er náð.

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert