Vegna veðurs í dag og kvöld getur orðið seinkun á þjónustu frá heimahjúkrun og félagslegri heimaþjónustu í Reykjavík. Haft verður símasamband við þá sem þjónusta fellur niður hjá.
Heimsending matar á vegum velferðarsviðs fer verulega úr skorðum í dag vegna veðurs. Reynt verður að dreifa því sem hægt er í dag, annars verður það gert á morgun ef veður leyfir.
Einnig hefur Ferðaþjónusta fatlaðra í Reykjavík hætt akstri. Þó verður unnið í því eins og hægt er að koma þeim heim sem fóru af stað í morgun.