Gasmælir á Heklutindi

Þyrla Landhelgisgæslunnar á leið með skýlið á Heklutind.
Þyrla Landhelgisgæslunnar á leið með skýlið á Heklutind. www.vedur.is

Veðurstofa Íslands setti upp gasmæli á Heklu fyrir tæpri viku síðan, en hann á að geta gefið vísbendingar um hvort eldgos sé í aðsigi. TF-LÍF, þyrla Landhelgisgæslunnar, flutti mælinn á tind fjallsins og munu mælingar hefjast í byrjun apríl.

Mælingarnar hófust í fyrra og er um að ræða samstarfsverkefni Veðurstofunnar við ÍSOR og ítölsku jarðváreftirlitsstofnunina INGV í Palermo.

Aðferðafræðin var prófuð sumarið 2012 og athugað hvort hún hentaði á Heklu. Mælingar gengu mjög vel frá því stöðin var sett upp í júlí og fram í september en þá kom upp vandamál með þráláta ísingu á vindmyllu sem sá mælinum fyrir rafmagni, samkvæmt frétt á vef Veðurstofunnar.

Stöðin hefur nú verið endurhönnuð af tæknimönnum Veðurstofunnar og INGV svo að hægt sé að mæla allan ársins hring á toppi Heklu. Búnaðurinn og rafgeymar eru nú í sérsmíðuðum kofa og sólarljós og hiti úr eldfjallinu nýtt til að halda stöðinni gangandi.

Gasmælingarnar í fyrra gáfu vísbendingar um að á um 10 kílómetra dýpi undir Heklu sé kvikuhólf sem stækki jafnt og þétt. Talið er að efnabreytingar í gasútstreyminu geti gefið vísbendingu um það þegar kvika fer að færast nær yfirborði.

Eftir að mælingar hefjast munu gögnin streyma á Veðurstofuna þar sem þau tengjast annarskonar vöktun (skjálftavirkni, skorpuþenslu). Lögð er áhersla á að hefja sem fyrst samfellda söfnum gagna til að fá upplýsingar um hegðun gasútstreymis frá eldstöðinni og finna þröskuldsgildi sem nýst geta sem fyrirboðar eldgoss.

Gasmælingastöðin hefur fengið gælunafnið Café Hekla. Hún er staðsett á tindi Heklu til frambúðar, með leyfi frá Rangárþingi ytra. 


Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti skýli fyrir gasmælistöð á tind Heklu.
Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti skýli fyrir gasmælistöð á tind Heklu. www.vedur.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert