Jeppinn var á röngum vegarhelmingi

Ljósmynd/Kristinn Freyr Jörundsson

Jeppabifreiðin sem ekið var á fólksbíl á Akrafjallsvegi skammt norðan Hvalfjarðarganga aðfaranótt laugardags var á röngum vegarhelmingi þegar áreksturinn varð. Sautján ára stúlka lést í slysinu.

Lögreglan á Akranesi fer með rannsókn á slysinu. Ökumaður jeppans er grunaður um ölvun við akstur, en hann var fluttur til aðhlynningar á sjúkrahúsi.

Slysið átti sér stað á beinum vegi. Engin hálka var á veginum og ekkert bendir til að veður hafi átt þátt í því hvernig fór. Ekki liggja fyrir upplýsingar um hraða bílanna, en gerð verður sérstök rannsókn til að komast að því hversu hratt þeim var ekið.

Stúlkan sem lést í slysinu hét Lovísa Hrund Svavarsdóttir. Hún var sautján ára og búsett á Akranesi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka