Lítil útfjólublá geislun vegna skýjafars

Útfjólublá geislun í Reykjavík var lítil í sumar vegna skýjafars, en skýjað var þá daga sem búast mátti við mestum styrk útfjólublárra geislunar í höfuðborginni. Aðra daga var styrkur geislunar ýmist lítill eða miðlungs.

Þetta kemur fram á vef Geislavarna ríkisins, sem hafa fylgst með styrk útfjólublárrar geislunar í Reykjavík og á  Egilsstöðum tvö síðastliðin sumur.

Fram kemur, að styrkur geislunarinnar sé miðaður við svokallaðan UV-stuðul (UV-index eða ÚF-stuðul) sem reiknaður sé út frá gervitunglamælingum. Miðað sé við sólarhádegi (kl 13:30) og heiðskíran himin.

Upplýsingarnar eru aðgengilegar á vef stofnunarinnar, uv.gr.is.

„Í fyrra fór UV-stuðullinn aðeins einu sinni upp í 6 en það gerðist 28. maí 2012. Þann dag skein sól í Reykjavík og margir fylgdust með flugsýningu á Reykjavíkurflugvelli. Sólvörn með háum stuðli (SPF) hefði gagnast mörgum þann dag.

Í sumar gerðist það fjórum sinnum að reiknaður UV-stuðull fór í 6. Þetta var þjóðhátíðardaginn 17. júní og þrjá daga í júlí: 9., 10. og 18. júlí. Alla þessa daga var skýjað (skýjahula 6/8 til 8/8) í Reykjavík og raunveruleg geislun við sjávarmál var því talsvert minni en reiknaður stuðull gefur til kynna.

Gervitunglamælingar sýndu aldrei UV-stuðullinn 6 (þ.e. hærri en 5,5) á Egilsstöðum, hvorki í sumar né síðastliðið sumar,“ segir í frétt á vef Geislavarna ríkisins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert