Jarðskjálftahrina sem hófst úti fyrir mynni Eyjafjarðar að kvöldi 24. september stendur enn og hafa um eitt þúsund skjálftar mælst. Í gærkvöldi klukkan 19:40 varð skjálfti 3,8 að stærð og er það stærsti skjálfti sem hefur mælst í hrinunni.
Flestir skjálftanna hafa verið innan við þrjú stig en nokkrir stærri sem hafa fundist á Siglufirði og Ólafsfirði.
Í fyrrahaust varð skjálftahrina á svipuðum slóðum og mældust þá tveir skjálftar yfir fimm stigum, annar 5,2 og hinn 5,6 þann 21. október. Virkasta svæðið í fyrra var norðvestan og suðaustan við það svæði sem skjálftarnir raða sér nú á.