Kjördæmaþing framsóknarfélaganna í Reykjavík hefur samþykkt tillögu kjörstjórnar um skipan í efstu sjö sæti framboðslista fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Óskar Bergsson leiðir listann.
Framsóknarflokkurinn í Reykjavík gengur til kosninga undir kjörorðunum Reykjavík fyrir alla. Efstu sjö sætin skipa:
Fram kemur á vef Framsóknarflokksins, að fjölmörg mál bíði úrlausnar í Reykjavík sem muni gera borgina að betri stað til að búa á.
„Það er ekki nóg að hlusta á borgarbúa, en heyra ekki hvað þeir segja. Ekki síst á það við skipulagsmál, en stórar ákvarðanir þarf að taka á næstunni svo þróun borgarinnar verði til hagsbóta fyrir alla Reykvíkinga, ekki bara suma. Liður í því er staðsetning flugvallarins í Reykjavík, en að mati Framsóknarflokksins verður að tryggja núverandi staðsetningu hans, ekki síst ef borgin á að þjóna hlutverki sínu sem höfuðborg allra landsmanna.
Skipulagsmál eru umhverfismál og þau verður að nálgast með umræðu við þá sem í borginni búa. Skipuleggja þarf borgina þannig að búseta nærri vinnustað sé raunhæfur möguleiki. Sem dæmi má nefna að tæp 80% af öllum störfum í Reykjavík eru í vestur hluta hennar, þessu þarf að breyta,“ segir á vef Framsóknarflokksins.