Aðgerðir Bandaríkjanna vonbrigði

Alþingi Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Alþingi Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. mbl.is/Ómar Óskarsson

Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, segir það vera vonbrigði að bandarísk stjórnvöld hafi ákveðið að grípa til diplómatískra ráðstafana gagnvart Íslandi. Hann ítrekar þó að veiðarnar séu löglegar samkvæmt alþjóðasamningum.

Í frétt á vef ráðuneytisins segir að innanríkisráðherra Bandaríkjanna hafi útnefnt Ísland samkvæmt svonefndu Pelly-ákvæði í febrúar síðastliðnum og lagt til við Bandaríkjaforseta að gripið yrði til diplómatískra aðgerða gegn Íslandi vegna hvalveiða.

Forsetinn ákvað að fara að tillögu innanríkisráðherrans en tilkynnti jafnframt að ekki yrði gripið til neinna viðskiptalegra aðgerða. Það var heldur ekki gert árið 2011, þegar forsetinn staðfesti sams konar aðgerðir af sömu ástæðum og nú, segir í tilkynningunni.

„Það eru vonbrigði að bandarísk stjórnvöld grípi til þessa ráðstafanna gagnvart Íslandi, en þó rétt að halda til haga að þetta eru ekki hörð viðbrögð og lík þeim sem við fengum 2011,“ segir Sigurður Ingi.

„Við ítrekum að veiðarnar eru löglegar samkvæmt alþjóðasamningum. Vísindagrundvöllur þeirra er traustur og það er hafið yfir allan vafa að veiðarnar eru sjálfbærar og alþjóðaviðskipti okkar með hvalaafurðir í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar,“ bætir hann við.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert