Lýsa yfir vantrausti á Hönnu Birnu

Birgitta Jónsdóttir er þingflokksformaður Pírata.
Birgitta Jónsdóttir er þingflokksformaður Pírata. mbl.is/Ómar Óskarsson

Píratar hyggjast lýsa yfir vantrausti á Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra samkvæmt tilkynningu sem þingflokkurinn sendi frá sér fyrir stuttu.

„Í ljósi atburðarásar undanfarna daga og mánuði hefur þingflokkur Pírata  verið að undirbúa tillögu um vantraust á innanríkisráðherra. Tillagan verður lögð fram þegar þing kemur saman í næsta mánuði. Ljóst er að innanríkisráðherra er vanhæf og rúin trausti í samfélaginu og því er ekki boðlegt að ráðherrann segi aðeins frá sér hluta af starfskyldum,”“segir í tilkynningunni.

Þá segir jafnframt að þegar komi að trausti til ráðherra gildi hin hefðbundna regla um að einstaklingar séu saklausir uns sekt sé sönnuð ekki lengur.

„Þegar um traust, eða vantraust, til ráðherra er að ræða, gildir ekki reglan ‘saklaus uns sekt er sönnuð’ eins og gildir um almenna borgara, heldur þarf ráðherra að njóta trausts og vafi af þeirri stærðargráðu sem nú er uppi um traust til ráðherrans er skaðlegur stjórnkerfi landsins. Ákvörðun þingflokks Pírata um vantraustsyfirlýsingu er ekki eingöngu byggð á formlegri ákæru á hendur aðstoðarmanni ráðherra heldur viðbrögðum ráðherrans í orðum og athöfnum frá því málið kom fyrst upp. Nú er ljóst að ráðherra hyggst afgreiða málið með hætti sem þingflokkur Pírata telur óásættanlegan með hliðsjón af því sem á undan er gengið. Því telur þingflokkur Pírata ekki annað fært en að leggja fram tillögu um vantraust á ráðherrann, á fyrsta degi haustþings, 9. septbember 2014 og mun þá færa nánari rök og gögn fyrir vantraustinu.“

Tilkynning á vefsíðu Pírata

Hanna Birna Kristjánsdóttir
Hanna Birna Kristjánsdóttir mbl.is/Ómar Óskarsson
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert