Fara fram á að jafnræðis verði gætt

Háskólinn á Akureyri.
Háskólinn á Akureyri. mynd/Háskólinn á Akureyri

Félag háskólakennara á Akureyri undrast þau áform fjárlaganefndar Alþingis að verja hlutfallslega miklu minna fé til Háskólans á Akureyri en annarra háskóla í landinu vegna úthlutunar aukinna framlaga til háskóla. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu sem skorar á fjárlaganefnd að breyta þessu.  

„Við förum fram á að jafnræðis sé gætt og að fjárveitingar til HA verði í réttu hlutfalli við nemendafjölda og umsvif skólans miðað við aðra háskóla. Skólinn hefur sýnt aðhald í rekstri og haldið útgjöldum innan fjárveitinga mörg undanfarin ár.

Hann hefur greitt upp skuldahala við ríkissjóð. Starfsfólk skólans lagði sitt af mörkum á erfiðum tímum með því að gangast undir skerðingu launa og réttinda. Rannsóknarmisseri kennara urðu fyrst á þessu ári aftur veruleiki eftir hrun. Óvíst er að hægt verði halda áfram með þau eins og dæmið lítur út núna.

Á sama tíma hefur hvergi verið slakað á faglegum kröfum og skólinn fengið góða umsögn í viðamikilli gæðaúttekt erlendra sérfræðinga á vegum stjórnvalda fyrr á þessu ári. Hlutur HA í boðaðri viðbótarfjárveitingu er í engu samræmi við hlutfallslegan nemendafjölda eða umfang skólastarfsins hér miðað við aðra háskóla.

Við lýsum undrun okkar á að fjárveitingavaldið skuli ekki gæta meira jafnræðis þegar svigrúm hefur skapast til þess að auka framlög til háskólamenntunar í landinu. Við skorum á fjárlaganefnd að taka þessi áform til endurskoðunar og hækka framlagið til Háskólans á Akureyri,“ segir í tilkynningunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert