Félagsmenn VR samþykktu verkfall

Merki VR.
Merki VR.

Verkfallsboðun á félagssvæði VR var samþykkt í atkvæðagreiðslu meðal félagsmanna sem lauk á hádegi í dag.

Kosið var um verkfall meðal félagsmanna sem starfa í fyrirtækjum innan Samtaka atvinnulífsins annars vegar og innan Félags atvinnurekenda hins vegar. Atkvæðagreiðslan var rafræn og hófst að morgni 12. maí síðastliðinn. 

Heildarniðurstöður eru sem hér segir: 

  • Samtök atvinnulífsins : Alls sögðu 3.830 já við boðun verkfalls eða 58% en 2.624 sögðu nei eða 39,7%. Auð atkvæði voru 154 eða 2,3%. Kosningaþátttaka var 25,2%, á kjörskrá voru 26.225. 
  • Félag atvinnurekenda : Alls sögðu 139 já við boðun verkfalls eða 57,4% en 96 sögðu nei eða 39,7%. Auð atkvæði voru 7 eða 2,9%. Kosningaþátttaka var 29,8%, á kjörskrá voru 813. 

Undirbúningur verkfallsaðgerða heldur því áfram en fyrirhugað er að þær hefjist með 2ja daga verkfalli starfsmanna í hópbifreiðafyrirtækjum þann 28. maí.

Tveggja daga verkföll í fleiri starfsgreinum fylgja svo í kjölfarið en þann 6. júní hefst ótímabundið allsherjarverkfall. 

Næsti samningafundur verður haldinn hjá ríkissáttasemjara kl. 14 í dag, þriðjudag,

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert