Ísland í beinni á Snapchat

Merki Snapchat.
Merki Snapchat.

Ísland verður „Live“ eða „í beinni“ á forritinu Snapchat á morgun. Þá geta einstaklingar sem staddir eru á Íslandi og hafa forritið, í símanum sínum eða spjaldtölvu, sent inn myndir og myndskeið sem allir notendur Snapchat víðsvegar í heiminum geta skoðað. Forritið er afar vinsælt og samkvæmt frétt Business Insider voru í maí s.l. næstum því 100 milljónir virkra notenda á Snapchat. 

„Beina útsendingin“ flakkar á milli landa og viðburða sem haldnir eru víðsvegar í heiminum. Í dag eru það Balí, Jamaíka og tískuvikan í New York sem eru „í beinni.“ Ætla má að hér sé um að ræða ágætis tækifæri á landkynningu.

Hér gæti verið á ferðinni gott landkynningartækifæri.
Hér gæti verið á ferðinni gott landkynningartækifæri.
Ísland er í beinni á Snapchat á morgun.
Ísland er í beinni á Snapchat á morgun. Skjáskot
Um 100 milljónir virkra notenda eru á Snapchat.
Um 100 milljónir virkra notenda eru á Snapchat. Skjáskot
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert