Áforma stofnun hamfarasjóðs

Sigmundur Davíð á bökkum Skaftár með Evu Björk Harðardóttur, oddvita …
Sigmundur Davíð á bökkum Skaftár með Evu Björk Harðardóttur, oddvita Skaftárhrepps (f.m.), Gunnari Sigurðssyni og Söndru Brá Jóhannsdóttur sveitarstjóra Skaftárhrepps (t.v.). Sigurður Bogi

Stjórnvöld ræða nú stofnun sérstaks hamfarasjóðs sem ætlað yrði að standa straum af kostnaði sem hlýst af völdum náttúruhamfara. Eldgosið í Holuhrauni í fyrra, skriðuföll við Siglufjörð síðsumars og nú síðast Skaftárhlaup gefa tilefni til slíks. Þetta segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra sem í gær kynnti sér aðstæður á flóðasvæðunum við Skaftá. Þar hafði hann tal af bændum og fulltrúum sveitarstjórna sem fóru heildstætt yfir málin.

„Mér fannst nauðsynlegt að kynna mér hver staðan væri. Hér hafa orðið miklar skemmdir og náttúran verið í miklum ham. Hér hefur vatn flætt yfir víðfeðm svæði, brotið niður árbakka og fleira. Það er ljóst að víða er þörf á því að ráðast í aðgerðir til að bæta skemmdir og munu ríkið og fleiri koma að því. Þess vegna fannst mér nauðsynlegt að sjá þetta sjálfur og hafa tal af heimamönnum,“ sagði Sigmundur Davíð í samtali við Morgunblaðið á vettvangi í gær.

Að sögn Sigmundar Davíðs hafa ráðherrar rætt hugmyndina um hamfarasjóð sín á milli að undanförnu, auk þess sem ráðuneytisstjórar og fleiri hafa komið að þessum bollaleggingum. Ráðherrann segir að vissulega séu til staðar ýmsar stofnanir og sjóðir sem séu bjargráð þegar náttúruhamfarir skella á. Það hve tíðar þær hafa verið á síðustu misserum gefi hins vegar ástæðu til að skoða hvort styrkja þurfi þennan málaflokk.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert