Úrskurðaður í farbann vegna kynferðisbrots

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar málið.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar málið. mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Maður sem var handtekinn á sunnudagsmorgunn, grunaður um kynferðisbrot, hefur verið úrskurðaður í farbann fram til næstkomandi þriðjudags. Að sögn Árna Þórs Sigmundssonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns gengur rannsókn málsins vel.

Eins og fram hefur komið á mbl.is var maðurinn úrskurðaður í gæsluvarðhald á mánudaginn vegna rannsóknar málsins. Kona lagði fram kæru vegna brots­ins en það á að hafa átt sér stað aðfaranótt sunnu­dags.

Fyrri frétt mbl.is: Í gæsluvarðhaldi vegna kynferðisbrots

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert