Draumur Margrétar rætist

Margrét Edda Gnarr er eini íslenski atvinnumaðurinn hjá IFBB
Margrét Edda Gnarr er eini íslenski atvinnumaðurinn hjá IFBB mbl.is/Eggert Jóhannesson

Margrét Edda Gnarr sigraði á IFBB Legends Pro Classic atvinnumannamótinu sem hún keppti á í nótt í Bandaríkjunum og vann sér þar með inn þátttökurétt á Olympia mótinu. Þetta kemur fram á fitness.is „Þetta er stórt stökk fyrir Margréti þar sem Olympia mótið er endastöðin hjá atvinnumönnum í líkamsrækt. Heimsmeistaramót atvinnumanna ef svo má segja,“ segir á vefnum.

Margrét Edda Gnarr er eini íslenski atvinnumaðurinn hjá IFBB og er með þessum stórkostlega árangri vægast sagt komin út í djúpu laugina að sögn fitness.is. „Allir keppendur, hvort sem það er hjá áhugamanna- eða atvinnumannadeildinni eiga sér þann draum að fá að keppa einn daginn á Olympia. Ofar verður ekki komist í keppnisheiminum.“

Á atvinnumannamótum er keppendum ýmist boðið að keppa eða þeir geta unnið sér inn þátttökurétt á mótum með því að sigra úrtökumót. Það var mikil gleði í herbúðum IFBB keppenda hér á landi þegar ljóst varð að Margréti Gnarr hefði verið boðið að keppa á IFBB Legends Pro Classics, ekki síst þar sem mótið gefur sigurvegaranum í hennar flokki heimild til að keppa á Olympia.

Margrét varð heimsmeistari hjá áhugamannadeild IFBB 2013 og vann sér þannig inn rétt til að verða atvinnumaður. Hún segir sjálf frá því að hún átti sér alltaf þann draum að keppa á Olympia mótinu en hún keppti sjö sinnum á tveimur árum áður en hún vann sinn flokk á heimsmeistaramótinu. Árið 2014 keppti hún á Arnold Classic atvinnumannamótinu þar sem hún hafnaði í níunda sæti. Undanfarið ár hefur hún ekkert keppt en óhætt er að segja að sigurinn núna kemur henni á beinu brautina að draumamótinu.

Margrét Gnarr hefur undanfarið verið í þjálfun hjá Fitnessakademíunni þar sem þau Sigurður Gestsson, Jóhann Norðfjörð og Kristín Kristjánsdóttir þjálfa fjölda fólks. Samkvæmt frétt fitness.is Það hefur verið áberandi hversu vel hefur gengið hjá þeim að koma keppendum á pall en sjálfsagt má þakka það áratugareynslu af þjálfun almennings og keppenda.

Ítarlega umfjöllun um mótið má finna á fitness.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert