Í vímu og olli slysi

mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók ökumann sem olli umferðarslysi á Grensásvegi á  tíunda tímanum í gærkvöldi þar sem hann er grunaður um akstur undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna. Sá gistir fangaklefa og verður rætt við hann í dag.

 Um svipað leyti, eða klukkan 21:30 var annar ökumaður stöðvaður í Hamrahlíð þar sem hann ók undir áhrifum fíkniefna. Sá þriðji var síðan tekinn í Lönguhlíð rúmlega tvö í nótt en hann er grunaður um akstur undir áhrifum áfengis.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert