Inflúensan enn í vexti

Starfsfólk á bráðamóttöku
Starfsfólk á bráðamóttöku mbl.is/Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Inflúensan er enn í vexti og er því áfram mikið álag á Landspítala. Í tilkynningu frá Landspítalanum er brýnt fyrir fólki að leita til heilsugæslunnar eða Læknavaktarinnar fremur en bráðamóttöku. Heilsugæslan á höfuðborgarsvæðinu og Læknavaktin hafa aukið viðbúnað sinn vegna stöðunnar.

Landspítali vill þó leggja áherslu á að fólk sem telur sig þurfa að leita til bráðamóttökunnar geri það.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert