Karlmaðurinn sem slasaðist alvarlega í vinnuslysi í morgun liggur þungt haldinn á gjörgæslu. Slysið varð í húsi við gömlu Áburðarverksmiðjuna í Gufunesi um klukkan tíu í morgun.
Að sögn lögreglu féllu fiskikör á manninn.
Maðurinn var fluttur með sjúkrabíl á Landspítalann og er lögregla enn við störf á vettvangi.
Frétt mbl.is: Alvarlegt slys í Gufunesi