Lögregla leitar manns

Lögregla leitar mannsins á myndinni.
Lögregla leitar mannsins á myndinni. Af Facebook síðu lögreglunnar

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af manninum á meðfylgjandi mynd vegna máls sem hún hefur til rannsóknar, og er hann vinsamlegast beðinn um að hafa samband við lögreglustöðina á Hverfisgötu 113-115 í Reykjavík í síma 444-1000.

Ef einhverjir þekkja til mannsins eða vita hvar hann er að finna eru hinir sömu einnig beðnir um að hringja í lögregluna eða senda upplýsingar í tölvupósti á netfangið 9726@lrh.is

Upplýsingum má einnig koma á framfæri í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af manninum á meðfylgjandi mynd vegna máls sem hún hefur til ranns...

Posted by Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu on Thursday, March 3, 2016
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert