Maðurinn sem stunginn var með hnífi fyrir utan stúdentagarðana við Sæmundargötu í Reykjavík aðfaranótt sunnudags er enn þungt haldinn. Er honum haldið sofandi í öndunarvél á gjörgæsludeild Landspítalans. Hann gekkst undir aðgerð eftir komuna á sjúkrahús.
Árásarmaðurinn hefur játað verknaðinn en hann veitti fórnarlambi sínu stunguáverka í bakið.
Mennirnir eru vinir og báðir fæddir 1989 en svo virðist sem einhver ágreiningur hafi komið upp á milli þeirra. Árásarmaðurinn mun sæta gæsluvarðhaldi til 9. mars.