Leita manns á Fimmvörðuhálsi

Ekkert amar að manninum sem stendur en þoka er á …
Ekkert amar að manninum sem stendur en þoka er á svæðinu og lítið skyggni og mun hann halda kyrru fyrir þar til aðstoð berst. mbl.is

Björgunarsveitir á Suðurlandi hafa verið kallaðar út til leitar að göngumanni á Fimmvörðuhálsi.

Um er að ræða erlendan ferðalang sem hugðist ganga hálsinn en hringdi eftir aðstoð þegar hann villtist af leið.

Samkvæmt upplýsingum frá göngugarpinum er hann líklegast staddur norðan við Baldvinsskála.

Ekkert amar að manninum sem stendur en þoka er á svæðinu og lítið skyggni og mun hann halda kyrru fyrir þar til aðstoð berst.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert