Braust inn á nokkrum stöðum

Mynd úr safni
Mynd úr safni mbl.is/Þorkell Þorkelsson

Í gærkvöldi var tilkynnt til lögreglu um nokkur innbrot í fyrirtæki í Hafnarfirði.  Við rannsókn lögreglu var karlmaður á fimmtugsaldri handtekinn á ellefta tímanum grunaður um innbrotin. 

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er hann vistaður í fangageymslu.  Í einu fyrirtækinu hafði þjófurinn komist í sjóðsvél og stolið skiptimynd.  Í hinum fyrirtækjunum er talið að engu hafi verið stolið en eignaspjöll voru unnin á útidyrahurðum og/eða rúður brotnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert