Mikill verðmunur á páskaeggjum í ár

Í flestum tilfellum var um 20-40% verðmunur á hæsta og …
Í flestum tilfellum var um 20-40% verðmunur á hæsta og lægsta verði páskaeggja. Styrmir Kári

Allt að 57% verðmunur er á páskaeggjum í ár, en algengast er að 20-40% munur sé á hæsta og lægsta verði páskaeggja að því er fram kemur í nýrri verðkönnun sem verðlagseftirlit ASÍ framkvæmdi í matvöruverslunum á höfuðborgarsvæðinu í gær.

Bónus var oftast með lægsta verðið í könnuninni eða á 20 af þeim 34 eggjum sem skoðuð voru. Hæsta verðið í könnuninni var oftast hjá Hagkaupum og Samkaupum-Úrval eða á 14 páskaeggjum af 34 og hjá Iceland á tíu eggjum. Í næstum öllum þeim tilvikum þar sem eggin voru til bæði hjá Bónus og Krónunni þá var eggið einni krónu ódýrara hjá Bónus en hjá Krónunni.

Flest páskaeggin í könnuninni voru fáanleg hjá Fjarðarkaupum og Hagkaupum en fæst hjá Samkaupum-Úrval og Nettó. 

20-40% verðmunur á hæsta og lægsta verði

Í flestum tilfellum var um 20-40% verðmunur á hæsta og lægsta verði. Sem dæmi má nefna að 27% verðmunur var á 450 g páskaeggi frá Góu. Var það ódýrast á 1.495 kr. hjá Krónunni en dýrast á 1.898 kr. hjá Samkaupum-Úrval, sem er 403 kr. verðmunur. Þá var 30% verðmunur á 530 g draumaeggi frá Freyju, sem var ódýrast á 2.198 kr. hjá Bónus en dýrast á 2.849 kr. hjá Hagkaupum og nemur verðmunurinn þar 651 kr.  535 g. Nóa kropps páskaegg var þá ódýrast á 2.399 kr. hjá Krónunni en dýrast á 3.199 kr. hjá Iceland sem er 33% verðmunur.

Minnstur verðmunur í könnuninni var á Freyju desert eggjum 6 stk. sem voru ódýrust á 648 kr. hjá Fjarðarkaupum en dýrust á 689 kr. hjá Hagkaupum sem er 6% verðmunur. Mestur verðmunur að þessu sinni var 57% á Nóa Síríus páskaeggi nr. 3 sem var ódýrast á 759 kr. hjá Bónus en dýrast á 1.189 kr. hjá Hagkaupum og nemur verðmunurinn 430 kr.

Könnunin var gerð miðvikudaginn 9.mars í verslunum Bónus, Krónunnar, Nettó, Iceland, Hagkaupum, Fjarðarkaupum, Samkaupum-Úrvali og Víði og tók til algengra páskaeggja frá íslenskum framleiðendum.

Aðeins er um beinan verðsamanburð að ræða í könnuninni, en ekki er lagt mat á gæði eða þjónustu söluaðila.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert