Sjúkraliðar sem starfa hjá sveitarfélögunum fara í verkfall 4. apríl verði ekki búið að semja þá. Þetta kemur fram á vef Sjúkraliðafélags Íslands.
Niðurstaða atkvæðagreiðslu um boðun verkfalls Sjúkraliðafélags Íslands gagnvart þeim sveitarfélögum og öðrum aðilum sem Samband íslenskra sveitarfélaga hefur samningsumboð fyrir var birt á vef félagsins í gær. Meirihluti þeirra sem tóku þátt greiddu atkvæði með verkfalli.