Rannsókn nánast lokið á Akureyri

Maðurinn skaut í gegnum rúðu á forstofu íbúðar þar sem …
Maðurinn skaut í gegnum rúðu á forstofu íbúðar þar sem býr hálfþrítu kona ásamt tveggja ára dóttur. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Rannsókn á skotmáli á Akureyri aðfararnótt sunnudags er nánast lokið en ekki er ljóst hvert framhald málsins verður þar sem ekki liggur fyrir að svo stöddu hvort maðurinn telst sakhæfur, segir Gunnar Jóhannesson, yfirmanns rannsóknardeildar lögreglunnar á Akureyri.

Maðurinn sem er á fimmtugsaldri var vistaður á geðdeild eftir að hafa skotið úr byssu í fjölbýlishúsi á Akureyri. Engan sakaði en fjórar íbúðir eru í húsinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert