Steingrímur og Bjarkey leiða lista VG

Steingrímur J. Sigfússon.
Steingrímur J. Sigfússon. mbl.is/Ómar Óskarsson

Alþingismennirnir Steingrímur J. Sigfússon og Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir leiða lista Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs í Norðausturkjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar en listinn var samþykktur á félagsfundi á Sel hóteli í Mývatnssveit í gær. Þá er Björn Valur Gíslason, varaformaður VG í þriðja sæti.

Hér má sjá listann í heild sinni:

  1. Steingrímur Jóhann Sigfússon, alþingismaður, Gunnarsstöðum, Þistilfirði
  2. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, alþingismaður, Ólafsfirði
  3. Björn Valur Gíslason, stýrimaður og varaformaður VG, Akureyri
  4. Ingibjörg Þórðardóttir framhaldsskólakennari, Neskaupstað
  5. Óli Halldórsson, forstöðumaður og sveitarstjórnarfulltrúi Norðurþings, Húsavík.
  6. Berglind Häsler bóndi, matvælaframleiðandi og tónlistarmaður, Karlsstöðum, Djúpavogi
  7. Edward H. Huijbens, prófessor, Akureyri
  8. Hjördís Helga Seljan grunnskólakennari, Reyðarfirði
  9. Sindri Geir Óskarsson guðfræðingur, Þingeyjarsveit
  10. Þuríður Skarphéðinsdóttir hjúkrunarfræðinemi, Egilsstöðum
  11. Aðalbjörn Jóhannsson, verkefnastjóri á æskulýðssviði og nemi, Norðurþingi
  12. Harpa Guðbrandsdóttir, gjaldkeri hjá Íslandspósti, Akureyri
  13. Gunnar S. Ólafsson framhaldsskólakennari, Neskaupsstað
  14. Sóley Björk Stefánsdóttir bæjarfulltrúi, Akureyri
  15. Kristján Eldjárn Hjartarson, bygginga- og búfræðingur, Tjörn, Dalvík
  16. Sif Jóhannesdóttir, forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Þingeyinga og sveitarstjórnarfulltrúi, Húsavík
  17. Kjartan Benediktsson smiður, Akureyri
  18. María Hjarðar nemi, Egilsstöðum
  19. Þorsteinn Gunnarsson, sérfræðingur, Rannís og fyrrv. rektor Háskólans á Akureyri, Akureyri
  20. Kristín Sigfúsdóttir, umhverfisfræðingur og framhaldsskólakennari, Akureyri
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir er í öðru sæti listans.
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir er í öðru sæti listans. mbl.is/Eggert
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert