Niðurníddur Bretabraggi öðlast nýtt líf

Hluti bygginganna gengur í endurnýjun lífdaga.
Hluti bygginganna gengur í endurnýjun lífdaga. mbl.is/Júlíus Sigurjónsson

Reykjavíkurborg mun á næstunni ráðast í framkvæmdir við Nauthólsveg 100, þar sem á að endurbyggja bragga, skemmu og náðhús og reisa tengibyggingu milli húsanna.

Nýverið sótti Reykjavíkurborg um leyfi byggingarfulltrúa Reykjavíkur til þess að ráðast í framkvæmdirnar.

Samkvæmt fundargerð byggingarfulltrúans á að endurbyggja braggann og tengdar byggingar, en það voru Bretar sem reistu byggingarnar á stríðsárunum. Í bragganum á að vera félagsaðstaða og veitingasala fyrir stúdenta við Háskólann í Reykjavík, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert