Starfslokasamningur Róberts samþykktur

Róbert Ragnarsson.
Róbert Ragnarsson. mbl.is/Helgi Bjarnason

Starfslokasamningur við Róbert Ragnarsson, bæjarstjóra Grindavíkur, var samþykktur á aukafundi bæjarstjórnar sem var haldinn í kvöld. 

Samningurinn var samþykktur með fjórum atkvæðum frá meirihluta G- og D-lista en fulltrúar minnihluta B- og S-lista sátu hjá við afgreiðsluna, að því er kemur fram á vef Grindavíkurbæjar.

Fundurinn var haldinn fyrir luktum dyrum vegna trúnaðargagna sem þar voru lögð fram.

Í yfirlýsingu meirihluta D- og G-lista kemur fram að Róbert verði nýjum bæjarstjóra innan handar fyrst um sinn og lýkur Róbert störfum 31. janúar 2017. Áætlaður kostnaður við starfslok hans er sex milljónir króna.

Minnihluti B- og S-lista segist í yfirlýsingu sinni harma vinnubrögð meirihlutans við vinnslu starfslokasamningsins. Málið hafi verið unnið án þess að nokkur umræða hafi átt sér stað í bæjarstjórn eða bæjarráði. 

Frétt mbl.is: Starfslok rædd á lokuðum fundi

Yfirlýsing meirihluta D- og G-lista

Meirihluti bæjarstjórnar Grindavíkur og Róbert Ragnarssonar hafa komist að samkomulagi um starfslok Róberts hjá sveitarfélaginu. Róbert mun sinna störfum sem bæjarstjóri til 31. janúar 2017.

Starf bæjarstjóra verður auglýst innan skamms en samkvæmt samkomulagi um starfslok Róberts sem bæjarstjóra mun hann verða nýjum bæjarstjóra innan handar fyrst um sinn og tryggja þannig að starfslok hans valdi sem minnstri truflun á rekstri bæjarfélagsins.

Róbert hefur gengt starfi bæjarstjóra frá ágúst 2010 og vill meirihluta bæjarstjórnar Grindavíkur þakka Róberti af heilum hug fyrir afar vel unnin störf og gott samstarf.

Áætlaður kostnaður við starfslok Róberts eru 6.000.000 kr sem reiknast á þrjá mánuði með launum og launatengdum gjöldum. Í núverandi ráðningarsamningi er kveðið á um þriggja mánaða biðlaunarétt við lok kjörtímabilsins. Sá kostnaður hefði alltaf komið til við lok ráðningarsamnings Róberts og er hann því ekki reiknaður með við þessi starfslok. Lögmannskostnaður í málinu er tæpar 830.000 kr.

Yfirlýsing minnihluta B- og S lista

Bæjarfulltrúar B- og S- lista harma mjög þau vinnubrögð meirihluta D - og G - lista sem átt hafa sér stað við vinnslu starfslokasamnings Róberts Ragnarssonar bæjarstjóra. Málið var unnið og samningar undirritaðir, bæði við lögfræðing og bæjarstjóra, án þess að nokkur umræða hafi átt sér stað í bæjarstjórn eða bæjarráði.

Róbert var ráðinn við upphaf síðasta kjörtímabils. Þá strax lagðist þáverandi bæjarstjórn í mikla vinnu við endurskipulagningu á stjórnskipulagi og rekstri bæjarins. Gríðarlegur árangur hefur náðst á grunni þeirrar vinnu. Í dag er Grindavíkurbær eitt best rekna sveitarfélag landsins og í öðru sæti á lista Vísbendingar um fyrirmyndar sveitarfélagið. Þessi árangur hefði ekki náðst nema með góðri samvinnu bæjarfulltrúa og starfsfólks Grindavíkur. Róbert gegndi mikilvægu hlutverki í þeirri vinnu og er því leitt að sjá hann hverfa frá störfum á þessum tímapunkti. Fulltrúar B- og S- lista þakka Róberti innilega fyrir samstarf síðustu ára og óska honum velfarnaðar í framtíðinni.

Fundinn sátu eftirfarandi bæjarfulltrúar:

Kristín María Birgisdóttir, forseti bæjarstjórnar (G)

Hjálmar Hallgrímsson, varaforseti (D)

Guðmundur Pálsson (D)

Jóna Rut Jónsdóttir (D)

Ásrún Kristinsdóttir (B)

Guðmundur Grétar Karlsson (B)

Marta Sigurðardóttir (S)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert