Stórskuldug amma freistaði gæfunnar

mbl.is/Arnaldur Halldórsson

Stórskuldug amma freistaði gæfunnar og keypti sér lottómiða í söluturninum Grundarstíg 12 í Reykjavík í síðustu viku og vann rúmlega 24 skattfrjálsar milljónir síðasta laugardag. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.  

Konan kom til Getspár ásamt dóttur sinni sem hún býr hjá tímabundið, þar sem hún leigir út eigin íbúð til að drýgja tekjurnar.

„Það var um nótt, konan andvaka og mundi þá eftir að hafa keypt miða, hún náði í miðann og bar saman við vinningstölurnar og ætlaði ekki að trúa sínum eigin augum. Hún vakti dóttur sína og sagði við hana að hún yrði að fara strax á fætur, dótturinni brá og móðirin sagði að þetta væri ekkert slæmt, hún myndi ekki vekja hana um miðja nótt til að segja henni slæmar fréttir. Mæðgurnar fóru svo sameiginlega yfir miðann og mamman sagði við dótturina að núna loksins gæti hún látið hana fá útborgun upp í íbúð,“ segir orðrétt í fréttatilkynningunni sem Íslensk getspá sendi frá sér í dag.

Vinningshafinn ætlar að þiggja fjármálaráðgjöf sem Íslensk getspá býður upp á og fá ráðleggingar um hvernig best er að greiða niður skuldir. 

Konan ætlar að bjóða fjölskyldunni á sólarströnd en hana hefur lengi dreymt um að geta boðið fjölskyldunni til útlanda í frí. Fyrst ætlar hún að bjóða öllum börnum sínum út að borða og segja þeim gleðifréttirnar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert