Ætla ekki að einkavæða Landsvirkjun

Benedikt Jóhannesson fjármálaráðherra.
Benedikt Jóhannesson fjármálaráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ríkisstjórnin hefur engin áform um að einkavæða Landsvirkjun. Hvorki að hluta né að öllu leyti. Þetta kemur fram í svari Benedikts Jóhannessonar fjármálaráðherra við skriflegri fyrirspurn frá Silju Dögg Gunnarsdóttur, þingmanni Framsóknarflokksins.

Ráðherrann vísar í svarinu í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar þar sem segir að eigendastefna verði gerð fyrir Landsvirkjun þar sem meðal annars verði markmið um að hámarka virði orkunnar og að fyrirtækið starfi í góðri sátt við náttúruna og landsmenn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert