Tveir stórir skjálftar í Bárðarbungu

Grænu stjörnurnar sýna hvar á Vatnajökli sjálftarnir urðu í kvöld.
Grænu stjörnurnar sýna hvar á Vatnajökli sjálftarnir urðu í kvöld. Kort/Veðurstofa Íslands

Tveir stórir jarðskjálftar urðu í Bárðarbungu í kvöld, nánar tiltekið í norðanverðri Bárðarbunguöskjunni.

Sá fyrri mældist kl. 20:33 og var af stærð 3,8, en sá seinni um tveimur og hálfri mínútu síðar var 3,9 að stærð.

Um tíu eftirskjálftar fylgdu, sá stærsti kl. 21:16 um 3,2 að stærð, að því er segir á vef Veðurstofu Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert