Fyrrverandi formenn stjórna

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. mbl.is/RAX

Fyrrverandi formenn Framsóknarflokksins, þau Valgerður Sverrisdóttir og Jón Sigurðsson, beittu sér á flokksþingi flokksins, sem haldið var í október í fyrra, til að fella Sigmund Davíð Gunnlaugsson úr formannsstóli. Þetta segir Sigmundur Davíð, sem í viðtali við Morgunblaðið rekur þessa atburðarás og ræðir m.a. nýstofnað þjóðmálafélag, Framfarafélagið, og stöðu flokksins.

„Ég var alltaf meðvitaður um að þau væru mér andsnúin. Þau voru hætt formlegum afskiptum af stjórnmálum og tóku engan þátt í flokksstarfi. Það kom á óvart þegar þau dúkkuðu upp fimm árum síðar á flokksþingi ásamt stórum hópi fólks. Þá vissi ég að eitthvað mikið var í gangi,“ segir Sigmundur Davíð.

Hann segir að stuðningur þessa hóps við núverandi formann, Sigurð Inga Jóhannsson, hafi ekki snúist um hann sem slíkan. „Heldur um að losna við mig. Og núna, eftir miðstjórnarfundinn, þar sem fram kom mikil óánægja með stefnu og formann flokksins, tel ég að þau hafi flest yfirgefið Sigurð Inga.“

Lilja yrði ekki öfundsverð

Sigmundur Davíð segir það hafa komið sér á óvart hversu mikil óánægja með stefnu og forystu flokksins kom fram á miðstjórnarfundi sem haldinn var síðasta laugardag. Þar var m.a. skorað á Sigurð Inga að segja af sér og Lilja Alfreðsdóttir varaformaður hvött til formennsku. Sigmundur Davíð segir Lilju vera öflugan stjórnmálamann. „En hún yrði ekki öfundsverð af því að verða formaður flokksins með flokkseigendurna á bakinu,“ segir hann.

Hann ræðir einnig stöðu sína í Framsóknarflokknum og segir að hann hafi ekki haft vettvang innan flokksins til að vinna að þeirri hugmyndafræði sem Framfarafélagið stendur fyrir, sem felst m.a. í að vera vettvangur frjálsrar umræðu um ýmis samfélagsmál, og því hafi hann þurft að leita út fyrir flokkinn. Hann segir Framsóknarflokkinn vera laskaðan eftir átök undanfarinna mánaða. „Fá tækifæri eru fyrir almennan flokksmann í grasrótinni til að láta til sín taka. Ósætti og skortur á samstöðu stendur í vegi fyrir því að flokkurinn geti þróast áfram og orðið að sterku hreyfiafli í íslensku samfélagi.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert