Gefa húsnæði undir leikskóla

Ljósmynd/Aðsend

Fasteignafélögin Heimavellir og Ásbrú íbúðir færa í dag Reykjanesbæ húsnæði að gjöf undir nýjan leikskóla að Ásbrú. Fram kemur í fréttatilkynningu að húsnæðið henti vel til leikskólastarfs en þar hafi áður verið samkomuhús á gamla varnarliðssvæðinu. Þar segir að gjöfin sé liður í því að byggja upp innviði á svæðinu.

„Gríðarleg uppbygging hefur verið á Ásbrú síðustu ár og hefur íbúðum á svæðinu fjölgað verulega. Íbúafjöldi telur nú um 2.700 manns og er stór hluti þeirra fjölskyldufólk. Einn grunnskóli er á svæðinu, Háaleitisskóli, en um 250 nemendur eru skráðir í skólann nú í upphafi vetrar,“ segir enn fremur í tilkynningunni. Ljóst sé að ráðst þurfi í töluverða innviðauppbyggingu á svæðinu vegna fjölgunar íbúa.

„Til að styðja við þessa uppbyggingu og flýta fyrir þróun hennar munu Heimavellir og Ásbrú íbúðir færa Reykjanesbæ að gjöf fasteignina Skógarbraut 932, undir rekstur leikskóla. Húsnæðið er vel staðsett, í miðju íbúahverfi þar sem er stutt í alla þjónustu. Heimavellir og Ásbrú íbúðir eiga og reka hátt í 1.000 íbúðir til samans á Ásbrú, í svokölluðum 900, 1100 og 1200 hverfum á Ásbrú. 

Haft er eftir Kjartani Má Kjartanssyni, bæjarstjóra í Reykjanesbæ, að nýi leikskólinn muni taka til starfa þegar núverandi leiðskólapláss á Ásbrú verði fullsetið en tveir leikskólar eru fyrir á svæðinu. „Við munum nýta veturinn til að innrétta húsnæðið að þörfum barnanna svo hann geti hafið starfsemi haustið 2018. Ef þörf krefur munum við hins vegar reyna að hraða framkvæmdum eins og kostur er.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert