Málið gegn Sveini Gesti Tryggvasyni vegna andláts Arnars Jónssonar Aspar verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur á fimmtudagsmorgun.
Sveinn Gestur er ákærður fyrir stórfellda líkamsárás í Mosfellsdalnum í sumar.
Héraðssaksóknari ákærði hann í lok ágúst.
Sveinn Gestur verður að óbreyttu í gæsluvarðhaldi til 28. september.