Bjarni Benediktsson forsætisráðherra, mun lesa upp tilkynningu um þingrof á þingfundi sem hefst klukkan 15:30 nú síðdegis.
Unnur Brá Konráðsdóttir, forseti Alþingis, tilkynnti þetta eftir fund sinn með formönnum allra þingmanna sem lauk nú fyrir skömmu. „Þar er einfaldlega forsætisráðherra að lesa upp tilkynningu um þingrof,“ segir Unnur Brá í samtali við mbl.is.
Fleiri dagskrárliðir eru ekki á þingfundinum.