Spá næturfrosti víða

mbl.is/Kristinn Magnússon

Útlit  er fyrir hæga suðlæga eða breytilega átt og bjart um mest allt land í dag og á morgun. En við ströndina frá Mýrdalsjökli að Snæfellsnesi, verður skýjað með köflum í dag og vaxandi suðaustanátt þar í nótt. Suðaustan 8-13 á morgun, skýjað og lítilsháttar væta en 13-18 annað kvöld. Hiti frá 2 til 7 stig að deginum en allvíða næturfrost.

Austlæg átt ríkjandi fram yfir helgi, lengst af allhvass vindur með suðurströndinni, en hægari vindur annarstaðar einkum norðantil. Rigning á Suðausturlandi á Miðvikudag og Fimmtudag en skýjað og úrkomulítið vestanlands og þurrt að kalla fyrir norðan. Áfram svipaður hiti, segir í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofu Íslands.

Veðurspá fyrir næstu daga

Hæg breytileg átt og léttskýjað en skýjað við suðvesturströndina. Vaxandi suðaustanátt suðvestanlands í kvöld, 5-10 m/s í nótt. Breytileg átt 3-8 og bjartviðri á morgun en suðaustan 8-13 vestantil, skýjað með köflum og sums staðar lítilsháttar væta. Suðaustan 13-18 vestast á landinu seint annað kvöld. Hiti 2 til 7 stig yfir daginn, en allvíða næturfrost.

Á þriðjudag:
Gengur í suðaustan 8-13 m/s og þykknar upp með lítilsháttar rigningu. Hægari vindur og bjartviðri norðan- og austanlands. Hiti 2 til 8 stig, hlýjast syðst. 

Á miðvikudag:
Suðaustan 5-13, en 13-18 með suðvesturströndinni. Rigning með köflum sunnanlands, en yfirleitt þurrt annarsstaðar. Hiti 2 til 8 stig, kaldast á Norðausturlandi. 

Á fimmtudag og föstudag:
Austan 5-13, en 13-18 með suðurströndinni. Rigning sunnantil og á Austfjörðum en léttskýjað norðvestanlands. Hiti breytist lítið. 

Á laugardag:
Austan 5-13, skýjað en úrkomulítið um landið austanvert, en bjartviðri vestantil. Hiti 3 til 8. 

Á sunnudag:
Útlit fyrir austlægaátt með rigning á köflum um landið sunnan- og austanvert en úrkomulítið norðvestantil. Hiti breytist lítið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert