Bíll í sjóinn á Árskógssandi

Höfnin á Árskógssandi. Þrír voru fluttir á sjúkrahús á Akureyri.
Höfnin á Árskógssandi. Þrír voru fluttir á sjúkrahús á Akureyri. mbl.is/Sigurður Bogi

Bíll fór fram af bryggjunni á Árskógssandi um klukkan hálfsex síðdegis í dag. Þrír voru í bílnum og voru allir fluttir á sjúkrahúsið á Akureyri. Frá þessu er greint á Facebook-síðu lögreglunnar á Norðurlandi eystra. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Norðurlandi eystra voru í bílnum tveir fullorðnir og eitt barn. 

Nánari tildrög slyssins liggja ekki fyrir en rannsókn málsins heldur áfram, að því er kemur fram í tilkynningu frá lögreglu. Ekki er grunur um að eitthvað saknæmt hafi átt sér stað. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert